|
|
25.02.2010 13:03:22 / Tomas
25. febrúar.
♥♥♥ Í dag eru 4 ár liðin frá því hann Tómas Ýmir okkar kvaddi þennan heim og kveikti ljós á himninum. Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og hvað manni finnst alltaf eins og þetta hafi gerst í gær. Hugsum um allar góðu minningarnar sem við áttum með Tómasi og við finnum þá hvað okkur hlýnar um hjartarætur. Okkur verður aldrei bætt upp þennan missi en við verðum að halda áfram í lífinu og hugsa um góðu tímana og hann Tómas okkar fylgist vel með okkur öllum og passar upp á okkur.
Minning þín er ljós í lífiokkar ♥♥♥
»
24.12.2009 17:45:34 / Tomas
Nú fara Jólin að ganga í garð og var þetta eitt af skemmtilegustu tímum ársins hjá Tómas okkar, það yndislega jólabarn sem í honum var, það var svo gaman að sjá hvað hann naut sín við jólaskreitingarnar og allt jólastússið  nú á þessum tíma ársins fer sökknuðurinn oft í hámark og passar maður sig á því að hugsa ætið um góðu og skemmtilegu minningarnar sem maður átti með honum og allar stundirnar sem við áttum saman. elsku Tómas Ýmir minn gleðileg Jólin og vil ég þakka allan þenna yndislega snjó sem ég óskaði mér að yrði þessi jólin þetta er dýrlegt :* mun hugsa mikið til þín um áramótin þegar sprengingarnar byrja þú hefur besta útsýnið yfir þær. kæru ættingjar og vinir vil ég óska öllum gleðilegra Jóla og farsældar á komandi ári gangið hægt inn og örugglega inn í nýja árið :*
Ásdís Hanna
»
30.11.2009 22:50:16 / Tomas
Langaði til að láta ykkur vita að ég hef uppfært síðuna og sett inn nokkra nýja tengla. t.d. minningargreinar úr mbl, minning vina, ljóð og nokkar myndir.
  hugur minn er hjá þér elsku Tómas Ýmir minn kveðja Ásdís Berg.
»
12.08.2009 17:40:49 / Tomas
»
01.05.2009 12:44:33 / Tomas
Dagurinn í dag var þinn, það var alltaf frí og því var alltaf gert eitthvað skemmtilegt í tilefni dagsins, því þú áttir afmæli og þennan, merkisdag í dag hefðir þú orðið 25 ára kallinn minn langar bara að óska þér til hamingju með daginn og vonandi að þú hafir það rosa gott þarna uppi og fáir nóg af kökum og góðgæti þar sem þú varstsvo mikill sælkeramaður  ég minnist 20 ára afmælis þíns þar sem þið félagarnir Hjalti og þú hélduð upp á afmæið saman og það var gert með sveitalegum stæl og planið var að halda enn flottara afmæli 25 árið ykkar saman. og ég er alveg viss um að þið brallið eitthvað saman í huganum núna. við hér hugsum til þín úr öllum áttum í dag og þessi dagur verður alltaf tileinkaður þér áfram.
Þín Ásdís Hanna
»
25.02.2009 00:21:33 / Tomas
það eru liðin 3 ár síðan þessi mynd var tekin
 Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt í dag eru 3 ár síðan þetta hörmulega slys var á Höfsfjökli og þú Tómas minn kvaddir okkur svo fljótt að það var eins og það hafi verið smellt fingri. ég skoðaði myndirnar úr ferðinni sem þú tókst og ég sá hvað þú varst glaður og það var svo gaman hjá ykkur að ég brosti allan tímann sem ég skoðaði þær og ég spái stundum í það að þú hafir ekki getað fundið betri stað og stund til að kveðja, þú varst úti í náttúrunni í frábæru veðri með besta vini þínum honum Jónasi og skemtir þér konunglega, þú varst svo mikið náttúrubarn og þú hafðir óskað þess lengi að fá að komast í svona jeppaferð, þú varst með sjúkdóm sem maður hefði aldrei vitað hvernig myndi hrjá þig eða fara með þig í framtíðinni, þetta var mun betra en að eiga kanski eftir að þjást af þessum slæma sjúkdómi, ef svo hefði farið. En það var alltaf eins og við vissum innst inni að okkur var var ættlaður stuttur tími saman við nýttum tímann vel saman, fjölskylda mín mintist oft á það hvað við vorum samrýmd, hvað við gerðum allt saman ef ég var beðin um að fara eitthvað eða passa krakkana þá komst þú alltaf með í það og ef þú varst beðinn um að koma í smá vinnu eða aðstoða þá kom ég alltaf með, svona var þetta bara og okkur leið vel þannig og fjölskylda mín talaði nú stundum um það að við gætum alveg verið í sinhvoru lagi svona stundum því við ættum nú allt lífið framundan, en þau sjá ekki eftir þessum tímum okkar saman í dag. Ég sé ekki eftir augnabliki sem við áttum saman, það voru bæði frábærar, góðar, slæmar, pirrandi, fúlar, sorglegar, unaðslegar og hlægjandi stundir en ef eitthvað af svona löguðu vantar í samband þá er það ekki eðilegt samband né gaman. Allt frá firsta degi ég sá þig var ég alveg yfir mig ástfangin af þér og man vel eftir fyrsta deginum á planinu upp í VMA þú og félagar að ná í stundaskránna, ég var með Gullu og Ingu og þær voru sko alveg til í að við myndum kynnast hún Gulla okkar kom þvi alveg af stað og í gang og Inga var alveg til að ýta undir það þetta var frábær mánuður fyrsti mánuðurinn famelian mín var ekki alveg tilbúin í meira strákavesen á mér en ég sagðist bara ekki geta slept þesum gæja þau yrðu bara að kynnast honum fyrst áður en þau segja alveg nei og auðvitað leist þeim svona rosa vel á þig J já ástin mín ég sakna þín mikið og það var gaman og gott að heyra rödd þína í myndbandi sem þú tókst þinn síðasta dag hjá okkur þá fanst mér ég finna svo mikið fyrir þér hjá mér. Ég hef alltaf kerti við mynd af þér á krúttlegri hillu á ganginum ásamt ýmsu dóti sem tengir okkur saman. Í dag mun ég tendra ljós handa þér og hugsa mikið til þín og sendi þér hlýja strauma og þínu fólki norður fyrir fjöll, þykir ákaflega leitt að geta ekki knúsað mömmu þína og pabba þennan dag en ég mun hugsa til þeirra eins Jónas okkar langar að gefa honum stórt knús þetta er hans dagur líka, gleymi heldur ekki þeim degi sem ég fór suður til að heimsækja Jónas á sjúkrahúsið þar sem ég sat hjá honum í að minstakosti 5 klukkutíma (sem liðu eins og 5 mínutur) og við skiptumst á að hugga hvort annað og gráta í kór en um leið yndisleg stund að vita að jónas var hér hjá okkur og við vissum bæði að þú varst þarna líka bara í anda. Mig þykir svo vænt um Jónas og langar að geta átt meiri tíma með honum og spjalla við hann en það er bara allaf brjálað að gera hjá öllum, en við verðum samt að gefa okkur tíma fyrir okkur sjálf og hugsa um hlutina. En ég finn það ávallt hvað þú styður við bakið á manni og hjálpar manni að feta rétta leið í lífinu, gott að hafa þig hjá okkur og þú veist það vel að þú munt alltaf fylgja okkur hvert sem við förum. Hafðu það gott elskan og vonandi hefur þú bara nóg að gera þarna uppi að siða liðið til þar .
 Love you Þín Ásdís Hanna vinir og vandamenn endilega sláið inn nokkrum minningum hér í kvitt sem þið áttuð með Tómsai það er svo gaman að lesa og rifja upp gamalt og gott með honum. kveðja.
»
24.08.2008 16:24:37 / Tomas
»
24.02.2008 12:13:03 / Tomas
Hér kemur smá blogg í tilefni dagsins um hann elsku Tómas minn mér finnst þetta svo fallegur sálmur ég hugsa mikið um Tóms þegar ég hlusta á hann. þetta er ógleymanleg dagsetning dagurinn í dag. endilega skiljið eftir ykkur smá spor til hans her neðast á blogginu.
† Minning † Tómas Ýmir F: 1. maí ’84 D: 25. feb ‘06
Drottin er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert íllt, því þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur huggar mig. Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyrð höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævi daga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. Hvíldu í friði þín Ásdís Hanna
»
31.05.2007 18:26:59 / Tomas
»
25.02.2007 12:00:57 / Tomas
Ungur drengur í blóma lífsins Féll frá fyrir
ári síðan og allt of fljótt †
†ÞAÐ ER ÁR LIÐIÐ †
Já ÁR liðið síðan þú kvaddir þennan heim svo
skyndilega að ekki er maður enn búinn að átta sig á því að þú komir
aldrei aftur. Elsku Tómas dagurinn í dag er undalegur þetta byrjaði
allt strax í nótt eftir miðnætti þá sveif yfir mann einhver þungi
en þetta er alveg ótrúlegt að það er liði ár mér finnst þetta
hafa gerst í gær. en í dag ætlum við nokkrir vinir, fjölskyldan
þínir og fjölskyldan mín að koma saman í messu á Möðruvöllum aðeins
til að komast inn í guðs hús og geta átt stund með þér, eftir það
kikkum við á fallega leiðið þitt og setjum kerti þér til minningar.
í kvöld komum við svo saman á Parken til að eiga kvöldið saman öll
getað faðmast, talað og tjáð okkur öll við hvort annað. mér þykir
svo vænt um þig og hugsa svo mikið til þín alla daga og þú fylgir
mér alveg í einu og öllu finn ég og veit og ég er afar þakklát
fyrir það. :*
Fallegt
ljóð:
Hver
getur siglt þó að blási ei byr,
bát sínum róið án ára?
Hver getur kvatt sinn kærasta
vin,
kvatt hann án sárustu tára?
Ég get siglt þó að blási ei byr,
bát mínum róið án ára.
En ekki kvatt minn kærasta vin,
kvatt hann án sárustu
tára.
Ég elska þig og mun alltaf
gera það :*
Þín Ásdís
Hanna
»
17.01.2007 10:43:23 / Tomas
Gleðilegt árið elskan mín einnig öll sem hafa á einhvern
hátt stutt mig og mína í gegnum þessi erfiði á árinu gamla og ég
vil bara þakka ykkur fyrir allt elskurnar mínar. þetta ár 2006
var erfiðasta ár sem ég hef upplifað og vona að árin á eftir mun
vera okkur öllum bjartsín og góð. eigum eftir gamlar góðar
minningar með þér Tómas minn og það er það sem heldur manni uppi að
geta minnst þín öll þau ár sem maður á eftir lifað. kossar og knús
til ykkar allra frá mér. þið vitið það sem á einhvern hátt hafa
aðstoaða mig eða stutt ég met það mikils. maður bara getur ekki
munað alveg hverjir það voru allir, til að gleyma eingum segi ég
þetta svona.. hafið það annars gott og elsku Tómas minn vonandi að þetta ár mun vera þér
auðveldara líka eins og okkur. sökknuður til þin er mikill og maður
hugsar mikið til þín og ég finn mikið fyrir þér sem mér finnst gott
og notalegt að geta spjalla við þig svona hvar sem ég stend.
kveðja þín Ásdís Hanna
»
20.12.2006 00:09:49 / Tomas
Já ástin mig langaði bara svona að deila með þér og öðrum að ég
satt best að segja held að ég hafi fengið jólapakka frá þér "Tómas
minn", á laugardagsmorguninn síðasta þá var ég vakin af
sendlamanninum Guffa frá FMN með pakka til mín og ég bara vá sá er
stór og kvittaði fyrir hann svo fór ég að spá hver er að senda mér
svona stóran pakka... spáði mikið.. en það stóð jólapakki á
sendibréfinu svo ég setti hann bara til hliðiar hann var reindar
svo stór að ég gat ekki komist hjá því að sjá hann ekki úr öllum
hornum í húsinu, en ættlaði svo bara að opna hann á aðfangadag. en
svo skoðaði ég betur fylgibréfið þar stór sendandi Valdís
Gunnarsdóttir v/bylgjan og ég bara hugsaði hvað er hún að senda ég
hef ekkert unnið á bylgjunni eða neitt...... svo var það ekki firr
en ég leit á gemsan sá að Sigga mín sýs var búin að hr 2 og senda 2
sms spurði hvort ég væri ekki örugglega heima og yrði það framm
yfir hádegi. jújú það var ég og þá fattaði ég strax að Sigga væri
eitthvað að brasa. svo hrindgi hún og og spurði hvað væri að frétta
og svona voða forvitin eins og eitthvað ætti að vera
merkilegt að frétta ég segi bara neinei vildi ekki segja neinum frá
pakkanum. þá var sigga eitthvað efins og sagðist heira í mér á
eftir.. hun hr aftur eftir smá og spurði aftur ég ákvað þá að segja
henni þetta og hún var voða glöð og ánægð og sagði mér að opna hann
ég bara nú opna þetta er jólapakki. en hún sagði að ég mætti opna
og ætti svo að hr í hana. ég opnaði og VVVV'AÁÁÁÁááááá þetta var
pakki með svo miklu fallegu dóti 5 pokar af flögum, konfektkassi, 4
nammipokar, matreiðslu bók rosa flott, ilmvatn frá sko Calvin Clin
og handa herra frá Tommy, bleikur sætur og hlír náttsloppur,
innengnarnóta í bónus upp á 10.000 þús og innegnar nóta í blómaval
upp á normansþin jólatré, svo stór poki með æðisleguvöronum SIA sem
blómaval er með hér á Ak. ilmkerti, servéttur, jólaskraut,
venjulegt skraut, og stittur rosa flott, og eitt kort sem stóð á
hafðu það gott Ásdís og njóttu jólanna vel aðventukveðja
Valdís Gunnarsdóttir ég átti ekki til orð þegar ég var
búin að skoða þetta allt saman. en hr í Siggu mína og hún spurði
hvort ég væir ánægð og svona spurði hvað væri í pakkanum og hún
bara vá svona mikið flott. sagði mér svo út á hvað´málið snértist.
en þannig var það að hún valdís talaði um í útvarpinu
þættinum sínum að ef einhver vissi um manneskju sem hefur mist
einhvern á árinu og mun sakkna hans mikið um jólin og eiga erfið
jól þá láta sig vita og sigga systir skrifaði henni tölvupóst lísti
mér og Tómasi slysinu og hún valdís valdi mig það hafa örugglega
einhverjir fleiri sent in póst til hennar en hún valdi mig og sagði
við siggu að henni langaði að gera eitthvað gott fyrir mig því
hún mundi svo vel eftir þessu slysi og það hafi verið
svo sorglegt.
þannig var þetta allt saman en alveg æði og í
raun kemur þetta allt út frá Tómasi svo ég segi bara að hann
hafi verið að færa mér jólagjöfina frá sér þessi elska og það er
eins og hann hafi valið þetta bara mikið í mínum stíl grænt,
svona sætt, og ilmvatnið fyrir herran er meirisegja eins og Tómas
átti einu sinni...
þakka vil ég bara Tómasi fyrst, Siggu svo sem kom þessu af
stað og Valdísi Gunanrs á bylgjuni fyrir að hafa gert
þetta fyrir mig.... kiss kiss fyrir og njótið vel.
Ásdís Hanna "dísin þín Tómas"
mynd af kassanum með dóti
»
29.11.2006 22:49:55 / Tomas
»
08.11.2006 11:05:47 / Tomas
Í byrjun Nóvember fórum við Lene, Íris og Eyþór til Dalvíkur
saman að leiðinu með fugla til að setja á krossinn og Lene bjó til
rosa flott kerti til að hafa á leiðinu. það var mjög gaman að fara
með þeim alveg inndislegt að vera með fjölskyldu þinni Tómas minn
alveg eins og í gamladaga. leiðið er orðið rosa fallegt og vona að
allir séu sáttir við það. sökknuður þinn er alltaf jafn mikill og
minkar aldrei. hugsa til þín á hverjum degi. og nú fer Desember
mánuður uppáhalds mánuður þinn að nálgast. það verður erfitt að
hugsa til þanns tíma án þín en veti að þú verður með okkur í
huganum. elska þig þín unnusta Ásdís Hanna
hér eru myndir úr ferðinni til þín elskan.

Lene mamma Tómasar

systkynin Eyþór og Íris við leiði bróður síns

»
22.09.2006 16:43:39 / Tomas
Ath endilega skrifið eitthvað í comment frekar en Gestabók hún
tekur ekki endalsut við kvitti en comment við bloggið getur tekið
endalaust af kvittum. gaman að geta haft þetta inni til að lesa
þegar liðinn er langur tími frá því að það var skrifað..
En elsku kallinn minn Jólinn eru að fara að nálgast þinn tími
ársins alveg órtulegt hvað þu varst mikið jólabarn. "ég ættla að
reina að finna góða jólamynd af þér og setja hér inn" þú elskaðir
að skreita og búa til jólaskrautið á þinn eiginn hátt,
jólakortagerðin var alfarið í þinum höndum og að pakka inn gjöfum
fannst þer rosa gaman. "smá upprifjun um jólin kem með eitthvað
meira í desember" snjór snjór snjór hann er kominn þér fannts nú
líka æðislet að leika þér á bretti og vera á snjósleða, jeppast út
í fjörðum og leika þér njóta náttúrunar eins og hún gerist best í
sveitinni eða upp í fjalli... almeran góða hún stendur sig í
snjónum, þú héllst voða mikið upp á hana á veturnar sagðir að hún
kæmist allt sem þú vildir og þurftir að fara, hafðir alltaf fulla
trú á þér og þínu dóti og alltaf borsandi.. 
lætt þetta gott í bili. þetta átti bara að vera smá minning um
þig og veturinn þinn. hafðu það gott elskan og njóttu þín eins og
þú getur. elska þig og sakkna, en get alltaf brosað í gegnum tárin
bara við að hugsa til þess að þú vakir yfir mér og ert hjá mér...
kiss kiss
þín Ásdís Hanna
»
Síður: 1 2
|
Heimsóknir
Í dag: 17 Alls: 25271
|